Stillingar lyklaborðs

Hvernig lyklaborð ertu með?

Ef þú finnur ekki alveg eins lyklaborð í listanum veldu þá það Almenna sem kemst næst þínu (t.d Almennt 101-lykla PC).

Veldu svo það stafasett sem þú vilt nota (t.d Íslenskt).

Innsláttur sértákna (eins og Ñ, Ô, og Ç) er gerður með því að nota broddstafi (með samsetningu af fleiri en einum lykli). Viljir þú geta gert slík sértákn með innslætti, skaltu velja Nota broddstafi. Ef ekki, skaltu velja Ekki nota broddstafi.

Þú getur notað tóma textahólfið neðst á skjánum til þess að prófa lyklaborðsstillingarnar.