Stillingar LILO

LILO (e. LInux LOader) er forrit sem hægt er að nota til þess að ræsa Red Hat Linux á tölvunni þinni. Það getur einnig ræst önnur stýrikerfi eins og Windows 9x. Hér verður þú beðinn að svara því hvernig (eða hvort) þú vilt stilla LILO.

Búa til ræsidisk: Þú ættir að búa til ræsidisk ef þú ætlar ekki að setja LILO upp á MBR eða ef þú ætlar ekki að setja það upp.

Ekki setja upp LILO: Þú getur valið að sleppa LILO viljir þú ekki setja það upp. Ef þú ert með tvo harða diska, með sitthvoru stýrikerfinu, er hugsanlegt að þú viljir nota ræsidisk frekar en LILO.

Til að setja LILO upp skaltu velja hvar þú vilt að það sé sett. Ef tölvan þín á eingöngu að keyra Red Hat Linux ættir þú að velja MBR. Ef tölvan þín hefur aðeins einn harðann disk með Win95/98 og Red Hat Linux saman, er mælt með að þú setjir LILO einnig upp á MBR.

Ef Windows NT er á vélinni þinni (og þú vilt setja LILO upp) ættir þú að setja LILO upp á fyrsta geira ræsirsneiðarinnar. Gakktu ennfremur úr skugga um að búa til ræsidisk, annars getur þú ekki ræst Linux.

Viljir þú einhverra hluta vegna ekki setja LILO upp, skaltu muna eftir að búa til ræsidisk til að geta ræst Red Hat Linux.

Hafi tölvan ekki aðgang að harða disknum í línulegum ham skaltu taka Nota línulegan ham valmöguleikann af.

Viljir þú bæta einhverjum sjálfgefnum gildum við LILO ræsiskipunina getur þú slegið þau inn sem viðföng í kjarnann. Öll slík viðföng eru send kjarnanum við ræsingu.

Ræsimerki: Allar disksneiðar sem hægt er að ræsa af eru skráðar og gefin nöfn (í Ræsimerki neðst á skjánum, einnig sneiðar sem önnur stýrikerfi nota). Ef þú vilt bæta við ræsimerki fyrir aðrar sneiðar (eða breyta einhverri sem er til fyrir) skaltu smella einu sinni á sneiðina til að velja hana. Þá getur þú breytt ræsimerkinu í sviðinu fyrir ofan.