SILO Configuration

SILO (e. the Sparc Improved LOader) er forrit sem hægt er að nota til þess að ræsa Red Hat Linux á tölvunni þinni. Það er einnig hægt að nota til þess að ræsa önnur stýrikerfi, eins og SunOS og Solaris. Hér munt þú geta valið hvernig og hvort þú vilt stilla SILO.

Búa til ræsidisk: Þú skalt búa til ræsidisk ef þú ætlar ekki að setja SILO upp. Einnig er gott að hafa einn til öryggis. Ef þú ert ekki með diskettudrif mun þessa valmöguleiki vera falinn og ef þú ert með SMCC framleidda Ultra sem hafa vanalega ekki diskettudrif sem hægt er að ræsa af mun óvirkt vera sjálfgefið gildi.

Ekki setja upp SILO: Þú getur valið að sleppa SILO ef þú vilt ekki skrifa SILO á diskinn hjá þér. Til dæmis ef þú ert þegar með það uppsett á annarri disksneið eða disk og þú vilt ræsa þaðan.

Til þess að setja SILO upp skaltu velja hvar þú vilt að það sé sett upp. Ef þú ætlar eingöngu að nota Red Hat Linux skaltu velja MBR (ræsihólf fyrstu disksneiðar á disknum). Á tölvum sem bæði SunOS/Solaris og Red Hat Linux eru ættir þú ekki að setja SILO á MBR. Sérstaklega ekki ef SunOS/Solaris er á fyrstu disksneiðinni.

Veljir þú að setja SILO ekki upp af einhverri ástæðu skaltu búa til ræsidisk svo þú getir ræst Red Hat Linux.

Búa til auknefni í PROM: Uppsetningarforritið getur búið til PROM samnefnið "linux" ef PROM-ið styður það. Þannig er hægt að ræsa SILO af skipanalínu í PROM með skipuninni "boot linux".

Stilla sjálfgefið PROM ræsitæki: Uppsetningarforritið getur gengið úr skugga um að PROM-ið muni ræsa sjálfgefið upp í Red Hat Linux, með því að setja PROM gildin "boot-device" eða "boot-from".

Viljir þú bæta einhverjum sjálfgefnum gildum við SILO ræsiskipunina getur þú slegið þau inn sem viðföng í kjarnann. Öll slík viðföng eru send kjarnanum við ræsingu.

Ræsanleg disksneið -- Allar disksneiðar sem hægt er að ræsa af eru skráðar og gefin nöfn, einnig sneiðar sem önnur stýrikerfi nota. Ef þú vilt bæta við ræsimerki fyrir aðrar sneiðar (eða breyta einhverri sem er til fyrir) skaltu smella einu sinni á sneiðina til að velja hana. Þá getur þú breytt ræsimerkinu.