Ertu alveg viss?
Þú munt tapa gögnum við að velja sjálfvirka uppsetningu vinnustöðvar.
Þessi tegund af uppsetningu mun eyða ÖLLUM gögnum á ÖLLUM Linux disksneiðum sem fyrir eru á ÖLLUM diskum í vélinni.
Viljir þú halda gögnum á Linux disksneiðum sem til eru fyrir ættir þú að velja sérsniðna uppsetningu eða að skipta disknum sjálfur í disksneiðar.
Notaðu Til baka hnappinn til að velja sérsniðna uppsetningu, eða Áfram viljir þú halda áfram með uppsetningu á vinnustöð sjálfvirkt.
Ef þú vilt sneiða handvirkt getur þú valið um annaðhvort Diskadrúídann eða fdisk (fyrir lengra komna) tólin.